punkturinn yfir i-ið

Er að fara að borga restina fyrir íbúðina mína og fá afsalið í hendurnar. Er þá formlega orðin "fullorðin"

Spurning um að halda upp á það og fara í Ikea og spreða aðeins........


Týndir sokkar

Ég skil þetta ekki. Hvernig er hægt að setja 4 sokka í þvottavélina en fá bara 3 út úr henni. Tekur vélin einhvern toll af þvotti sem ég veit ekki af.......................ég hélt að þetta vandamál yrði úr sögunni eftir að ég flytti út og væri orðin ein en.................nei

 Ég bara skil þetta ekki............


Óska eftir

einhleypri, barnlausri og útivinnandi vinkonu!!!!!!

Ekki skilja þetta sem svo að ég sé á móti mökum, börnum, námsmönnum eða heimavinnandi konum. Þvert á móti. Hitt er það að ég er búin að reyna að ganga á vinkonuhópinn og reyna að plata, þó það væri nú ekki nema eina, með mér í svona "stelpuferð" til Evrópu í haust.

En nei!!

Tvær með kornabarn á arminum, tvær í námi, þrjár í íbúðarkaupum, ein nýkomin að utan, ein á leið út með makanum, nokkrar að fara til Ameríku í stelpuferð (einmitt þegar ég kemst alls ekki með !!!)

Þannig að ég veit ekki alveg hvað ég geri - Ætli það endi ekki með því að ég plata mömmu og systur Ástu systur til Glasgow eða eitthvað!!

Skrítið hvað hlutirnir eru fljótir að breytast.


jæja

Þá er sumarfríið búið og álagið í vinnunni aðeins að minnka svo að kannski fer eitthvað að gerast hérna.

Annars finnst mér alltaf jafnmerkilegt hvað það er erfitt að byrja að vinna aftur eftir sumarfrí þrátt fyrir það að ég hafi alveg nokkurn verið tilbúin til þess að byrja aftur. En núna er snooze takkin vel nýttur á morgnana og ég verð bara að segja að ég get eiginlega ekki án hans verið!

 

p.s. Hver ætli hafi fundið upp "Snooze-takkann"?


Af hverju ekki

að prufa eins og margir aðrir.

Er eiginlega komin með leið á að vera að hjakkast inn í blogdrive-inu þar sem það er ekki alveg nógu skemmtilegt umhverfi. Svo er bara að sjá hvað setur............


Um bloggið

Sigríður Halldórsdóttir

Höfundur

Sigríður Halldórsdóttir
Sigríður Halldórsdóttir
Sirrý er stelpa með dálæti á skóm!
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 144

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband